Skilmálar

 

Holtsels Hnoss kt 690819-0230., Holtsel 605 Akureyri, 866 1618, holtsel@holtsel.is 

Holtsels Hnoss áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Eimskip gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Eimskip um afhendingu vörunnar. Holtsels Hnoss ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Holtsels Hnoss til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda eða flutningsaðila. Frí sending er á pöntunum 25.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Ósóttar pantanir

Sé vara ekki sótt á afhendingastað Eimskips innan þess tímaramma sem flutningsaðili gefur upp, þá er varan endursend til Holtsels. Holtsels Hnoss ehf. áskilur sér rétt á að endurgreiða ekki ósóttar pantanir.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% vsk en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Eimskip á næstu afhendingastöð Eimskips. Sendingakostnaður er 4.000 kr.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands Eystra.